Psalms 33

1Gleðjist, þér réttlátir, yfir Drottni! Hreinlyndum hæfir lofsöngur. 2Lofið Drottin með gígjum, leikið fyrir honum á tístrengjaða hörpu. 3Syngið honum nýjan söng, knýið strengina ákaft með fagnaðarópi. 4Því að orð Drottins er áreiðanlegt, og öll verk hans eru í trúfesti gjörð. 5Hann hefir mætur á réttlæti og rétti, jörðin er full af miskunn Drottins. 6Fyrir orð Drottins voru himnarnir gjörðir og öll þeirra prýði fyrir anda munns hans. 7Hann safnaði vatni hafsins sem í belg, lét straumana í forðabúr. 8Öll jörðin óttist Drottin, allir heimsbúar hræðist hann, 9því að hann talaði _ og það varð, hann bauð _ þá stóð það þar. 10Drottinn ónýtir ráð þjóðanna, gjörir að engu áform lýðanna, 11en ráð Drottins stendur stöðugt um aldur, áform hjarta hans frá kyni til kyns. 12Sæl er sú þjóð er á Drottin að Guði, sá lýður er hann hefir kjörið sér til eignar. 13Drottinn lítur niður af himni, sér öll mannanna börn, 14frá bústað sínum virðir hann fyrir sér alla jarðarbúa, 15hann sem myndað hefir hjörtu þeirra allra og gefur gætur að öllum athöfnum þeirra. 16Eigi sigrar konungurinn fyrir gnótt herafla síns, eigi bjargast kappinn fyrir ofurafl sitt. 17Svikull er víghestur til sigurs, með ofurafli sínu bjargar hann ekki. 18En augu Drottins hvíla á þeim er óttast hann, á þeim er vona á miskunn hans. 19Hann frelsar þá frá dauða og heldur lífinu í þeim í hallæri. 20Sálir vorar vona á Drottin, hann er hjálp vor og skjöldur. 21Já, yfir honum fagnar hjarta vort, hans heilaga nafni treystum vér. 22Miskunn þín, Drottinn, sé yfir oss, svo sem vér vonum á þig.
Copyright information for Icelandic